RINAT hanskar og vörur í hæsta gæðaflokki - Sérvalið hanskamerki fyrir Ísland - Af hverju RINAT?
RINAT á Íslandi er umboðsaðili fyrir markmannsmerkið RINAT. Ástæðan fyrir því að ég hóf að flytja inn markmannshanska vorið 2019 var vegna þess að sonur minn Árni Marinó var markmaður ÍA þá í 3. flokki. Ég sem foreldri markmanns fannst fáranlegt að úrvalið og aðgengi að hönskum væri svo lélegt hérlendis sem raun bar vitni að það þyrfti að panta hanska erlendis frá (eins og Árni Marinó gerði á þessum tíma) og jafnframt hjálpaði ÍA ekkert til. 2021 var Árni Marinó búinn að vinna sér sæti í aðalliði ÍA í efstu deild ásamt að vera yngsti markmaður í byrjunarliði í deildinni það ár aðeins 19. ára gamall og vakti hann mikla og verðskuldaða athugli fyrir frábæra frammistöðu. Stóri þátturinn í hans árangri var að vera vel hanskaður.
Vegna sonarins byrjaði ég haustið 2018 að finna hanskamerki og hefja innflutning fyrir markmenn á Íslandi. Ég vildi finna hanskamerki sem væri í fremstu röð á sínu sviði án þess að horfa til stóru vörumerkjanna. Það tók mig ekki langan tíma að finna og sannfærast um RINAT. Það sem heillaði mig við RINAT var úrvalið af sniðum og litaúrvalið sem er ávallt afar glæsilegt. Svo er saga stofnandans Hector Castro afar áhugaverð en hann var fátækur markmaður sem saumaði saman og bjó til sína hanska úr eldri notuðum hönskum.
Mín hugmynd við innflutningi á RINAT var líka að aðstoða markmenn á Íslandi og ekki síst að fara í samstarf við félögin í landinu. Þannig að félögin gætu aðstoðað sína markmenn til að fá gæða hanska á betri kjörum og aðgengið væri fyrsta flokks. Mér fannst svo mikið vanta fyrir markmenn á Íslandi og bara ekki sanngjarnt að markmenn í hópíþrótt þyrftu að bera allan sinn kostnað af hönskakaupum. Þarna eiga forsvarsmenn félaga og markmannsþjálgarar að koma inn og hafa samband um samstarf, það er hagur allra.
Árið 2019 þegar ég hóf innflutning á RINAT er merkið nánast óþekkt á Íslandi en 2023 er RINAT orðið eftirsóknarverðasta hankamerkið á Íslandi. Vinsælasta hanskamerkið meðal meistaraflokksmarkmanna á Íslandi (hlutfallslega nota flestir RINAT miðað við önnur hanskamerki). Afar vinsælt meðal yngri flokka.
Þess má geta að RINAT fyrirtækið er mexíkóskt og 36 ára gamalt og framleiða aðeins markmannsvörur og fitness vörur (ekki fáanlegar í Evrópu). Nota aðeins bestu fáanleg efni í sína hanska og eru í bestu gæðum sem völ er á. Markmenn í stærstu deildum heims nota RINAT hanska. André Onana markmaður Manchester United er einn þeirra.
Verið velkomin í RINAT fjölskylduna. Mín ástíða eru markmenn og vil ég bjóða upp á bestu þjónustuna. Vefsíðan http://rinat.is var opnuð vorið 2020 og verslun okkar opnaði 30. september 2023 í Ármúla 19, 2. hæð.
RINAT Sport Ísland er lítið fyrirtæki með stórt hjarta. Komum með ástíðu inn á íslenskan markað til að aðstoða markmenn og í samstarf við félög. Fylgið og merkið okkur á samfélagsmiðlum @rinatisland #rinatisland #teamrinatisland
Markmiðið var fyrst og fremst að aðstoða soninn með að vera alltaf vel hanskaður. Einnig að bjóða markmönnum á Íslandi upp á gæða hanska á góðum kjörum. Síðast en ekki síst að fara í samstarf við félögin í landinu til að aðstoða og sína stuðning við sína markmenn með góðum afsláttarkjörum. Bjóðum einnig upp á heildsöluverð fyrir verslanir. Í framhaldi af velgengni RINAT erum við dreifingaraðili fyrir Gloveglu sem eru stærstir á heimsvísu á hanskaspreyjum fyrir markmannshanska.
Við gerum skriflega samninga við markmenn sem æfa og keppa aðeins með Rinat hönskum.
Eftirfarandi markmenn eru með samning við Rinat:
Sindri Kristinn Ólafsson FH
Ingvar Jónsson Víkingi R.
Jökull Andrésson Reading
Árni Marinó Einarsson ÍA
Anton Ari Einarsson Breiðablik
FÉLÖG: Hafið samband til að fá afsláttarkjör fyrir alla markmenn félagssins.
AÐRIR MARKMENN: Erum með sérstök afsláttarkjör fyrir landsliðsmarkmenn (þar með talin öll yngri landslið). Hafið samband.
Saga RINAT er mjög áhugaverð og þess virði að kynna sér hana. Fyrirtækið var stofnað árið 1986 af Mexíkóanum og markmanninum Hector Castro og hafa markmannshanskarnir verið framleiddir alla tíð síðan í sömu byggingunni í Mexíkó. RINAT eru nefndir í höfuðið á markmannsgoðsögninni Rinat Dasayev sem stóð á milli stanganna hjá landsliði Sovétríkjanna á níunda áratug síðustu aldar. Merkið hefur verið að ryðja sér til rúms í Evrópu og hefur verið sérstaklega vinsælt í Suður-Ameríku og margir af bestu markmönnum í Mið- og Suður-Ameríku nota þá. RINAT eru notaðir af landsliðsmarkmönnum og meðal annars í La Liga efstu deild á Spáni og Premier League á Englandi og öðrum efstu deildum víðsvegar um Evrópu..
Frekari upplýsingar veitir:
Einar Bjarni Jónsson
Umboðsmaður Rinat & Gloveglu á Íslandi
einar (hjá) rinat.is
Sími: 6800070