Almennt

Rinat.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar vörur eru afgreiddar innan tveggja virkra daga eftir pöntun nema sérstakar ástæður koma upp. Afhendingartími er venjulega 1-4 virkir dagar. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Rinat.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá okkur til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Pantanir á Stór-Reykjavíkursvæðinu geta verið keyrar heim til viðkomandi þótt beðið hafi verið um annað.

Sendingargjald er það sama um allt land 1.290 krónur með VSK og bætist við heildarandvirði pöntunar. Ekkert sendingargjald bætist við pantanir ef verslað er fyrir meira en 13.000 krónur.

Ábyrgð

Allar vörur koma með tveggja ára ábyrgð til einkstaklinga. Ábyrgðin gildir í eitt ár fyrir fyrirtæki.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við [email protected] ef upp vakna spurningar.

Varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur verslunarinnar á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð í netverslun rinat.is getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

RINAT & NETGOLFVÖRUR

KT. 271271-3369

VSK NR. 113853

MARKMANNSBÚÐIN

ÁRMÚLA 19,

108 REYKJAVÍK

OPNUNARTÍMAR:

MIÐ. KL. 16-19

LAU. KL. 11-16

RINAT @ RINAT.IS

SÍMI: 6800070

© RINAT 2020-2024  ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN | SKILMÁLAR

SAMFÉLAGSMIÐLAR

Merkið okkur @rinatisland #rinatisland #teamrinatisland

Add to cart